Reiknivél

Um Kolvið

Markmið Kolviðar er aukin binding kolefnis í skógarvistkerfum til að draga úr styrk koldíoxíðs í andrúmslofti, að binda jarðveg og draga úr jarðvegseyðingu, að auka vitund almennings og fyrirtækja um losun gróðurhúsalofttegunda og að stuðla að fræðslu um tengd málefni.

Hugmyndin

Hugmyndafræðin að baki Kolviði byggir á bindingu kolefnis úr andrúmsloftinu með skógrækt: tré binda kolefni (C) en leysa súrefni (O₂) út í andrúmsloftið. Sjóðurinn hvetur til þess að dregið sé úr losun gróðurhúsalofttegunda af fremsta megni, og til kolefnisbindingar í jarðvegi og gróðri fyrir þá losun sem óhjákvæmileg er.

Markmiðin eru margþætt: á sama tíma og kolefnisbinding á sér stað binst jarðvegur og gróðurvistkerfi auðgast.

Stofnendur

Skógræktarfélag Íslandsskog.isLandverndlandvernd.is

Ársreikningur Kolviðar er endurskoðaður af KPMG og kynntur á aðalfundum stofnenda.

Sagan

  1. 2003

    Hugmyndin kviknar

    Hljómsveitin Fræbbblarnir heldur minningartónleika um Joe Strummer, stofnanda sjóðsins „Future Forests“, í samvinnu við Landvernd og Skógræktarfélag Íslands. Ágóðinn rann til Kolviðar.

  2. 2006

    Kolviður stofnaður

    Nafnið varð til á hugarflugsfundi Fræbbblanna. Stofnendur eru Skógræktarfélag Íslands og Landvernd.

  3. 2007

    Fyrsta starfsárið

    Vefsíðan opnuð í maí og gróðursetning hefst í fyrsta Kolviðarskóginum, á Geitasandi í landi Stóra-Hofs á Rangárvöllum.

  4. 2017

    Úlfljótsvatn

    Plöntun hefst á landi Skógræktarfélags Íslands og skátahreyfingarinnar.

  5. 2020

    Norðurland

    Plöntun hefst í Ærvíkurhöfða við Húsavík.

  6. 2024

    ISO 14064-vottun

    Verklag Kolviðar við gróðursetningu og kolefnisbindingu byggir á handbók samkvæmt ISO 14064, vottaðri af Bureau Veritas. Kolviður gerist félagi í Festu – miðstöð um sjálfbærni.

  7. 2026

    Á Mógilsá

    Skrifstofan flytur á Mógilsá, þar sem Rannsóknastöð skógræktar var til húsa í áratugi.

Stjórn og starfsfólk

Kolviður leggur áherslu á náið samstarf við vísindamenn á þessu sviði sem miðla af þekkingu sinni og því nýjasta sem er að gerast í rannsóknum á bindingu kolefnis.

Starfsfólk

  • Guðmundur ÁrnasonRekstrarstjóriFjármál og reikningar
  • Ragnhildur FreysteinsdóttirStarfsmaður Skógræktarfélags Íslands, hlutastarf hjá KolviðiSkjalaumsjón og almennar fyrirspurnir

Stjórn

  • Reynir KristinssonStjórnarformaður
  • Aðalsteinn SigurgeirssonFulltrúi Skógræktarfélags Íslands
  • Pavle EstrajherFulltrúi Skógræktarfélags Íslands
  • Gunnlaugur Friðrik FriðrikssonFulltrúi Landverndar
  • Gústaf Jarl ViðarssonFulltrúi Landverndar

Ársskýrslur og ársreikningar

Sjóðurinn heldur ársfund fyrir lok október ár hvert þar sem gerð er grein fyrir starfseminni og ársreikningum. Samstarfsaðilum er boðið til fundarins til að fræðast um starfsemina og koma með ábendingar.

Þar sem Kolviður kostar áframhaldandi ræktun og umsjón með skógunum er hluta tekna haldið í sérstökum söfnunarsjóði.

Verðskrá5.900 kr.á tonn CO₂ frá og með 1. september 2024