Kolefnisbinding fyrir fyrirtæki
Viðskiptavinir Kolviðar binda kolefni á móti útblæstri ökutækja og aðkeyptra flutninga, flugferðum starfsmanna og gesta, flugfrakt og skipaflutningum með aðföng og fullunna vöru.

Svona virkar samstarfið
Rekstraraðilar hafa samband við Kolvið varðandi reikninga vegna kolefnisbindingar, en greiða ekki í gegnum vefinn, sem er ætlaður einstaklingum.
- 1
Kolefnisbókhald
Losun er reiknuð af fagaðila í kolefnisbókhaldi, t.d. Klöppum Grænum lausnum eða Eflu. Loftslagsmælir Festu getur einnig hjálpað til. Kolviður reiknar ekki út losun fyrirtækja.
- 2
Samstarfssamningur
Kolviður gerir langtíma samstarfssamning við fyrirtækið um kolefnisbindingu á grundvelli kolefnisbókhaldsins.
- 3
Gróðursetning
Þjálfað fólk gróðursetur í Kolviðarskóga til að tryggja góða lifun. Plöntun í hvert svæði lýkur innan fimm ára vegna umsjónar, mælinga og skráninga.
- 4
Merki Kolviðar
Á samningstímanum er heimilt að nota merki Kolviðar á kynningarefni, svo framarlega sem skýrt kemur fram á móti hvaða losun er bundið.

Meira en kolefnisbinding
Með því að velja Kolvið stuðla viðskiptavinir að því, auk kolefnisbindingar, að binda jarðveg og draga úr jarðvegseyðingu – einu helsta umhverfisvandamáli Íslendinga.
Nútímaleg fyrirtæki leggja mikla áherslu á umhverfismál og gott orðspor veitir forskot á kröfuhörðum markaði. Margþættur ávinningur felst í því að gera grein fyrir kolefnisspori starfseminnar, leita allra leiða til bættrar nýtingar og binda kolefni á móti þeirri losun sem óhjákvæmilega á sér stað.
Verklag Kolviðar byggir á handbók samkvæmt ISO 14064, vottaðri af Bureau Veritas.
Fyrirtæki sem hafa bundið kolefni með Kolviði
Samningsbundin fyrirtæki sem hafa bundið kolefni með skógrækt hjá Kolviði.









































































































- Noron ehf.
- Snókur
- Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti
Reglur um merki Kolviðar
Að samningstíma liðnum er óheimilt að nota merki Kolviðar; notkun þess þá er samningsbrot.
Samningsaðilum um kolefnisbindingu er heimilt að nota merki Kolviðar á kynningarefni og önnur skjöl sem upplýsa viðskiptavini um samfélagslega ábyrgð á samningstímanum. Mikilvægt er að skýrt komi fram á móti hvaða þáttum í starfseminni er bundið kolefni, svo viðskiptavinum séu ekki send röng skilaboð. Að samningstíma liðnum er óheimilt að nota merkið.
Fiskútflytjendum sem binda kolefni á móti losun tengdri flugfrakt á ferskum fiski samkvæmt samningi við Icelandair Cargo er heimilt að nota merki Kolviðar á umbúðir, skjöl og kynningarefni. Skýrt skal koma fram að um kolefnisbindingu tengda flugfrakt sé að ræða, t.d. „Carbon neutralized airfreight“ undir merkinu.
Drykkjarvöruframleiðendum með samning um kolefnisbindingu tengda flutningi vörunnar frá Íslandi til uppskipunarhafnar er heimilt að nota merki Kolviðar á flöskur og ytri umbúðir. Koma skal skýrt fram á móti hvaða þætti í ferli vörunnar er bundið kolefni.
Senda fyrirspurn
Eða sendu póst á kolvidur@kolvidur.is.
