Reiknivél

Kolviðarskógar

Kolviðarskógar eru ræktaðir eða friðaðir til að sporna við uppsöfnun koldíoxíðs í andrúmsloftinu. Kolviður gerir langtímasamninga við landeigendur um ræktun á áður skóglausu landi – nú víða um land.

Skrifstofa, MógilsáGeitasandurReykholtSkálholtÚlfljótsvatnÆrvíkurhöfði

Geitasandur

Land Stórahofs, Rangárvallasýslu

Fyrsti Kolviðarskógurinn. Kolviður hefur verið með tvö svæði á leigu frá Landgræðslunni. Fyrra svæðið er um 190 ha; plöntun hófst 2007 og lauk 2016. Gróðursetning á seinna svæðinu hófst 2019.

Almenningi er heimilt að nýta svæðið til útivistar.

  1. 2007Plöntun hefst
  2. 2016Fyrra svæði fullplantað
  3. 2019Seinna svæði hefst
gróðursett tré frá upphafi
2,5 milljón+
tonn CO₂ bundin frá upphafi
333.000+
fyrirtæki hafa verið í samstarfi
190+
okkar skógar
935 ha

Hvernig binda skógar?

Með ljóstillífun breyta tré koldíoxíði og vatni í sykrur og skilja út súrefni. Kolefni binst í stofni, rótum og greinum en einnig í skógarbotni og jarðvegi.

Bindigeta

Bindigeta skóga er breytileg eftir landgæðum og tegundasamsetningu. Samkvæmt rannsóknum Rannsóknastöðvar skógræktar getur árleg binding numið um og yfir 20 tonnum af CO₂ á hektara.

Í sátt við umhverfið

Kolviður vinnur eftir leiðbeiningum Skógræktarfélags Íslands um skógrækt í sátt við umhverfið, rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, ISO 14064-2 og lögum og reglugerðum um skógrækt.

Áttu land sem gæti orðið Kolviðarskógur?

Gengið er þannig frá samningum að ef skógur þarf að víkja vegna almannahagsmuna fær Kolviður tapaða bindingu að fullu bætta.

Fyrir landeigendur