Reiknivél

Fræðsla

Styrkur gróðurhúsalofttegunda, einkum koldíoxíðs, hefur aukist gríðarlega síðustu fimmtíu ár. Hér er farið yfir hvernig skógar binda kolefni, hvernig draga má úr losun og svör við algengum spurningum.

Spurt og svarað

Algengar spurningar um kolefnisbindingu Kolviðar.

Birkibörkur

Kolviður byggir útreikninga sína á því að það taki skóginn að meðaltali 50 ár að binda tilskilið magn af kolefni, sem er í góðu samræmi við aðgerðaáætlun alþjóðasamfélagsins. Í fyrsta loftslagsskógi Kolviðar var reiknaður binditími 90 ár.

Hægt var að stytta reiknaðan binditíma vegna landgæða og trjátegundavals, og því að rannsóknir sýna hærri kolefnisbindingu en áður. Fái skógurinn að standa eftir að binditíma lýkur heldur hann áfram að binda kolefni um ókomna tíð.

Hvað er kolefnisbinding?

Laufblöð

Laufblöð og barrnálar eru lungu jarðarinnar. Plöntur breyta koltvíoxíði og vatni í sykrur og súrefni með ljóstillífun:

6H₂O + 6CO₂ + ljós → C₆H₁₂O₆ + 6O₂

Vissir þú?

  1. Akstur metanbíla er kolefnishlutlaus.
  2. Tengitvinnbílar menga mun minna en hefðbundnir bensín- eða dísilbílar.
  3. Bílar menga hlutfallslega meira í snattakstri en í langkeyrslu.
  4. Kaldstart eykur eyðslu og þar með losun á CO₂.
  5. Venjuleg farþegaþota brennir 3,5–4 tonnum af þotueldsneyti á klukkustund.
  6. Venjuleg farþegaþota sem flogið er í 6 klst. losar 66–76 tonn af CO₂.
  7. Asparskógurinn í Sandlækjarmýri bindur 20–30 tonn af CO₂ á hektara á ári.
  8. Árleg meðalbinding ræktaðra skóga á Íslandi er 7,2 tonn af CO₂ á hektara.
  9. Bensínbíll sem eyðir 10 L/100 km og ekið er 20 þúsund km losar 4,6 tonn af CO₂.
  10. Ræktaðir skógar á Íslandi binda nú um 330.000 tonn af CO₂.
  11. Kolefnisspor íbúa á Íslandi er um 12 tonn CO₂-ígilda á ári.
  12. Flest bendir til að á Íslandi verði minni skil á milli árstíða vegna röskunar veðrakerfa.

Minnkun útblásturs

Fyrsta skrefið er ávallt að reyna að draga úr losun. Með bindingu má vega upp á móti þeirri losun sem ekki verður komist hjá.

Fjöldi bíla á hvern íbúa á Íslandi er með því mesta sem gerist í heiminum og bílaflotinn er orkufrekur. Hegðun fólks hefur einna mest áhrif á eldsneytisbrennslu – bæði hvernig bíllinn er notaður og hvernig honum er ekið. Borgarskipulag, samhæfing umferðarljósa og ástand vega hafa einnig áhrif.

Leiðir sem einstaklingar geta farið

  • Aka um á metanbíl eða rafbíl
  • Velja sparneytinn bíl, t.d. tengitvinnbíl
  • Ganga eða hjóla styttri ferðir
  • Nota almenningssamgöngur eins og hægt er
  • Spara sér ferðir með góðu skipulagi
  • Vanda aksturslag og stunda vistakstur
  • Huga að viðhaldi ökutækis
  • Fækka flugferðum eins og kostur er

Samgöngur

Flug

Flugsamgöngur eru orkufrekar en mikill árangur hefur náðst með sparneytnari flugflota og bættri sætanýtingu. Íslendingar eru háðari flugsamgöngum en flestar aðrar þjóðir. Losun í flugi getur verið mismunandi eftir flugvélategundum, hreyflum og sætanýtingu.

Akstur

Kolviður hvetur alla til að gæta ýtrustu hagkvæmni varðandi ökutækjanotkun og velja eins vistvæna bíla og orkugjafa og völ er á. Allir útreikningar eru miðaðir við losunarstuðla eldsneytis og eru alltaf aðeins nálgun.

Siglingar

Siglingar eru að jafnaði umhverfisvænni leið til að koma vörum á markað eða flytja aðföng samanborið við aðra kosti og valda ámóta losun og flutningar með lest.