Ræktaðu skóg með Kolviði
Kolviður leigir land af landeigendum til gróðursetningar trjáplantna og gerir þinglýstan samning um leiguna. Kolviður hvetur landeigendur til að skoða þennan möguleika til landnýtingar og landbóta.

- 50–60 ár
- Samningstími
- 100 ha+
- Stærð lands
- < 5 ár
- Gróðursetning
- Þín eign
- Að leigutíma loknum
Vaxtarlota skógarins sem Kolviður reiknar með er 50–60 ár, og það er tímalengd þinglýstra leigusamninga um land.
Almennt er leitað eftir landi sem er a.m.k. 100 ha. Frjósamt land er æskilegast, en við skoðum flesta möguleika.
Miðað er við að ljúka gróðursetningu í leiguland á innan við fimm árum, eða skipta því upp í slíkar einingar.
Skógurinn – trén, kolefnisbinding umfram leigutímann og innviðir eins og vegir og slóðar – verður eign landeigenda. Til umræðu er einnig eingreiðsla í upphafi.
Hver gerir hvað?
Kolviður
- Gerir skógræktaráætlun fyrir landið og hefur umsjón með framkvæmdum á leigutímanum
- Sækir um framkvæmdaleyfi
- Útvegar plöntur, flutning á staðinn og áburð
Landeigandi
- Samþykkir þá þætti framkvæmda sem samningur tilgreinir, t.d. mannvirkjagerð
- Getur komið að slóðagerð, girðingum, jarðvinnslu, gróðursetningu og áburðargjöf – Kolviður greiðir fyrir það samkvæmt verðskrá Skógræktarinnar
Spurningar? Sendu póst á kolvidur@kolvidur.is eða hringdu í síma 551 8150.
Segðu okkur frá landinu
Nánari upplýsingar um landsvæðið hjálpa okkur að meta hæfi þess til skógræktar.
