Bindum kolefni í íslenskum skógum
Kolviður ræktar skóga sem binda kolefni á móti losun frá akstri, flugi og rekstri – og bindur um leið jarðveg og dregur úr jarðvegseyðingu. Reiknaðu þína losun og sjáðu skóginn vaxa.

Einstaklingar
Bittu kolefni á móti losun frá heimilisbílnum eða flugferðum. 10 tré binda kolefni sem samsvarar 6 tíma flugi fram og til baka, eða akstri um 4.400 km.
Kolefnisbinda sem einstaklingur →
Fyrirtæki
Kolviður gerir langtíma samstarfssamninga við fyrirtæki um kolefnisbindingu á grundvelli kolefnisbókhalds – vegna ökutækja, flugferða, flugfraktar og skipaflutninga.
Samstarf fyrir fyrirtæki →Hvað er kolefnisbinding?
Tré binda kolefni (C) úr andrúmsloftinu en leysa súrefni (O₂) út í það. Smelltu á hlutana til að sjá hvar kolefnið endar.
Laufblöð
Laufblöð og barrnálar eru lungu jarðarinnar. Plöntur breyta koltvíoxíði og vatni í sykrur og súrefni með ljóstillífun:
6H₂O + 6CO₂ + ljós → C₆H₁₂O₆ + 6O₂
Staðaltréð
Kolviður reiknar bindingu út frá staðaltré sem er samsett úr fimm tegundum. Ræktaðir eru fjölbreyttir skógar sem binda kolefni og gegna um leið fjölþættu hlutverki fyrir menn og lífríki.
1 tonn CO₂ ≈ 10 tré miðað við núverandi stuðla. Binding er þó mismunandi eftir tegundum og staðsetningu.
- BirkiÍslenska ilmbjörkin
- StafafuraSígrænt barrtré
- SitkagreniHávaxið barrtré
- ÖspAlaskaösp
- LerkiFellir barrið á haustin
Kolviðarskógar um allt land
Kolviður gerir langtímasamninga við landeigendur um ræktun kolefnisskóga á áður skóglausu landi. Fyrsti skógurinn var gróðursettur á Geitasandi árið 2007.
Geitasandur
Land Stórahofs, Rangárvallasýslu
Fyrsti Kolviðarskógurinn. Kolviður hefur verið með tvö svæði á leigu frá Landgræðslunni. Fyrra svæðið er um 190 ha; plöntun hófst 2007 og lauk 2016. Gróðursetning á seinna svæðinu hófst 2019.
Almenningi er heimilt að nýta svæðið til útivistar.
- 2007Plöntun hefst
- 2016Fyrra svæði fullplantað
- 2019Seinna svæði hefst
- gróðursett tré frá upphafi
- 2,5 milljón+
- tonn CO₂ bundin frá upphafi
- 333.000+
- fyrirtæki hafa verið í samstarfi
- 190+
- okkar skógar
- 935 ha
Það tekur skóginn að meðaltali 50 ár að binda tilskilið magn kolefnis. Fái hann að standa eftir það heldur hann áfram að binda kolefni um ókomna tíð.
Spurt og svarað
Fyrirtækin okkar
Fjöldi fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum bindur kolefni með tilstuðlan Kolviðar – verið velkomin í hópinn.









































































































Fréttir
Allar fréttirKolviður flytur
Kolviður flutti sig um set í lok júní og er ný staðsetning skrifstofu á Mógilsá, þar sem Rannsóknastöð skógræktar var til húsa í áratugi.
Svíþjóð orðið kolefnishlutlaust – þökk sé sænskum skógum
Áhugaverð grein eftir Peter Holmgren um hlutverk skóga Svíþjóðar í baráttunni við loftslagsbreytingar.
Skýrsla um kolefnismarkaði
Skýrsla um kolefnismarkaði – áskoranir og tækifæri í íslensku samhengi – er birt á samráðsgátt stjórnvalda ásamt umsögnum hagaðila.

Ert þú landeigandi?
Kolviður leigir land til gróðursetningar með þinglýstum samningi til 50–60 ára. Að leigutíma loknum verður skógurinn eign landeigenda. Kolviður útvegar plöntur, flutning og áburð.
Kynntu þér samstarfið